af hverju r23?
Frá hugmynd að útgefnu leyfi
Leyfaferli fyrir veitingastaði, atvinnuhúsnæði og almennan rekstur eru gjarnan flókin, tímafrek og óljós. Mismunandi eftirlitsaðilar gera ólíkar og stundum ósamræmdar kröfur; gögn þurfa að vera rétt uppsett og ferlið stöðvast fljótt ef eitthvað út af bregður.
r23.is eyðir þessari óvissu. Við tökum að okkur heildarumsjón ferlisins, samhæfum kröfur opinberra aðila og tryggjum að verkefni fari skipulega í gegnum kerfið. Viðskiptavinurinn fær einn ábyrgðaraðila, skýra yfirsýn og raunhæfa leið að markmiðinu.
Reynsla sem telur
Verklag okkar byggir á áratuga reynslu og þúsundum vinnustunda í krefjandi verkefnum. Við þekkjum stjórnsýsluna að innan og vitum nákvæmlega hvar hindranirnar liggja.
100+ Starfs- og rekstrarleyfi: Á síðustu árum höfum við unnið og skilað yfir hundrað leyfisumsóknum. Við tölum fagmálið og svörum fyrirspurnum eftirlitsaðila milliliðalaust.
Hundruð viðburða og veitingastaða: Við höfum stýrt uppsetningu á hundruðum viðburða og fjölda veitingastaða, jafnt hér á Íslandi sem erlendis.
Alþjóðleg þekking: Reynsla okkar af erlendum mörkuðum gefur okkur dýpri skilning á nýtingu rýmis, flæði og hagkvæmni í hönnun.
verklag r23.is
-
Við rýnum verkefnið í heild sinni og greinum þarfir hvers og eins. Við förum yfir þau gögn sem þegar eru til staðar, leggjum mat á stöðuna og skilgreinum næstu skref miðað við þitt umfang.
-
Byggt á reynslu okkar skilgreinum við nákvæmlega hvaða leyfa er þörf og hvaða eftirlitsaðilar koma að málinu. Þannig lágmörkum við óvæntar tafir síðar í ferlinu.
-
Öll gögn, teikningar og lýsingar eru samræmdar og gæðavottaðar áður en umsóknarferlið hefst, sem tryggir hnökralausa afgreiðslu hjá eftirlitsaðilum.
-
r23.is stýrir öllum samskiptum og gagnaflutningi við opinbera aðila. Við tölum fagmálið, þekkjum ferlana og svörum fyrirspurnum milliliðalaust.
-
Við fylgjum málinu eftir af festu, svörum umsögnum og gerum nauðsynlegar leiðréttingar til að halda ferlinu á hreyfingu allt til enda.
-
Verkefninu lýkur með formlegu, útgefnu leyfi og fullbúnum gögnum.
Við styðjumst ávallt við okkar eigin Master-Checklist. Það er verkfæri sem byggir á áralangri reynslu og tryggir að ekkert gleymist, að allar kröfur séu uppfylltar og að öll gögn séu á réttum stað á réttum tíma
hafa samband
Bókaðu í fyrstu greiningu hjá okkur eða hafðu samband fyrir nánari upplýsingar.
